Úlfur Úlfur, SXSXSX, Sumardagurinn fyrsti, Prikið.
Sko, athugið þetta ærlega og alls ekki missa af þessu.
—-
SXSXSX:
sxsxsx er samstarf Helga Sæmundar og Björns Vals. Helgi er pródúser og annar tveggja stofnenda hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur. Björn Valur er DJ fyrir sömu hljómsveit og marga aðra. Báðir hafa þeir svo samið tónlist fyrir aðra artista.
Eftir að hafa deilt ótal hótelherberjum á ferðalögum með Úlfur Úlfur kom upp sú hugmynd að prófa að semja tónlist saman þar sem bluetooth hátalari, ableton push og lítið midi keyboard var oftast með. Það vatt svo upp á sig og nú er komið að þeirra fyrsta live setti saman. Tónlistin er instrumental hiphop, electro og trap í anda TNGHT, Mr Carmack, What So Not og fleiri.
Úlfur Úlfur:
Eftir að hafa selt tæplega 3000 eintök af plötunni Tvær Plánetur er hljómsveitin Úlfur Úlfur byrjuð að vinna að nýrri tónlist aftur og ætla þeir Arnar og Helgi að koma á Prikið og frumflytja 3 glæný lög ásamt fullt af öðru kunnuglegra dóti. Þetta verður næs partí.
—
Sjáumst í sveiflu!
kv. Prikið og fjölskylda.
Previous Event Next Event