Logi Pedro x RBMA Club Night / Prikið
Absolutely ekki missa af þessu…
—
Í tilefni þess að þriðji þátturinn af vefútvarpsþættinum Up North, í umsjá Loga Pedro á vegum RBMA Radio (Red Bull Music Academy Radio) er að fara í loftið, ætlar Red Bull á Íslandi að bjóða uppá heljarinnar veislu undir yfirskriftinni RBMA Club Night á Prikinu, næstkomandi laugardag, en Logi Pedro mun að sjálfsögðu stjórna veislunni.
RBMA Radio var stofnað árið 2005, og er í dag ein stærsta vefútvarpstöð í heimi með yfir 600.000 hlustendur og yfir 5000 útsendingar, þar sem fókusinn er á tónlist og hvað er að gerast í heimi tónlistarinnar.
Þættirnir Up North er samstarfsverkefni á milli Svíþjóðar, Noregs og Íslands, en þar er farið yfir nær allt litróf raftónlistar, þar á meðan Techno, Hip Hop, Hús og allt þar á milli. Logi Pedro stýrir þættinum einu sinni í mánuði, en hann stýrði einnig þættinum á Sonar Reykjavík ásamt fleiri þáttastjórnendum á vegum RBMA Radio, og var þátturinn í beinni útsendingu frá Hörpu á meðan á hátíðinni stóð.
Í þættinum fær Logi til sín góða gesti, en Ólafur Arnalds, Gísli Pálmi, Sturla Atlas og fleiri tónlistarmenn eru á meðal þeirra sem hafa komið fram í þættinum.
Næsti Up North þáttur í umsjá Loga fer í loftið, mánudaginn 11.4.2016.
Þar sem Logi Pedro er fastaplötusnúður á Prikinu, ákvað Red Bull að sækjast eftir samstarfi við Prikið og verður þetta mánaðarlegur viðburður með Loga og fleiri góðum gestum.
Veislan byrjar um klukkan 22:00 og stendur fram eftir morgni.
Hér er tengill inná þáttinn.
http://www.rbmaradio.com/categories/local-spotlights/formats/up-north
—-
Mæta snemma!
Kv. Prikið
Previous Event Next Event