Ísland – Kosóvó
Það er stórleikur hjá íslenska landsliðinu á mánudagskvöld þegar Ísland getur tryggt sér sæti á HM í Rússlandi 2018 með því að bursta Kosóvó. Í tilefni af því hendum við upp risaskjáum á Bryggjunni Brugghús og höfum mánudags líf og fjör. Kíkið endilega við og fáið ykkur smá að borða og nokkra ískalda beint af tönkunum í Brugghúsinu.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og er liður í undankeppni HM 2018 og ljóst að íslenska landsliðið er í banastuði eftir stórkostlegan sigur á Tyrkjum. Við á Bryggjunni leggjum okkar af mörkum til stuðnings liðinu og gefum frían bjór fyrir hvert mark sem Ísland skorar í leiknum og þeir eru svo sannarlega á skotskónnum þessa dagana.
Ath Happy Hour eins og venjulega frá 15-19 húsbjórinn á 500 kr!
Áfram Ísland, HÚH.
Previous Event Next Event