Kronika í Kjallaranum á Hard Rock – Frítt inn
Laugardaginn 10. desember heldur KRONIKA tónleika á Hard Rock Cafe.
Fyrsta plata sveitarinnar, Tinnitus Forte, rataði í hillur verslana, sem og á veitur alnetsins fyrir stuttu síðan og á efnisskránni verða lög af henni eins og hefðin gerir ráð fyrir. Platan verður til sölu, andrúmsloftið fallegt og gleði í kortunum.
Meðlimir Kroniku koma úr öllum áttum og árekstur þeirra skapaði bræðing sem erfitt er að skilgreina. Fremst í flokki fer Tinna Sverrisdóttir sem áður hafði breytt íslensku rappsenunni með Reykjavíkurdætrum. Hér fær hún að njóta sín til fullnustu við rapp, söng, textagerð og öfgafulla tjáningu sem tælir alla með í dans og dulúð. Fyrir aftan hana standa þrír fullvaxta karlmenn, Guðmundur Stefán Þorvaldsson sem slær gítar og er sjálfsagt þekktastur fyrir að hafa gert slíkt áður, en þá kannski lausar, með krúttsprengjunum í Sunnyside Road. Um dekkri hliðina sjá Snæbjörn Ragnarsson bassaleikari Skálmaldar og Birgir Jónsson trommuleikari Dimmu.
Kronika fer á svið kl 23 og það er FRÍTT INN!
Previous Event Next Event