Aukatónleikar – Jónas og Ritvélar framtíðarinnar
Dec 22, 2016 @ 9:00 pm — Dec 23, 2016 @ 11:00pm
Uppselt á Þorláksmessu, þannig að við bættum við aukatónleikum 22.des.
Um að gera að taka frá borð, fá sér almennilega að borða og skella sér á eitt stykki tónleika í jólatörninni.
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög hlotið verðskuldaða athygli og mörg ratað hátt á vinsældarlista landsins.
Á tónleikunum verður hægt að kaupa best of plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, en sú plata kom út í sumar og hefur bara fengist á tónleikum hljómsveitarinnar.
Previous Event Next Event