-

BIG KAHUNA ÁTKEPPNI PRIKSINS.

Þá er komið að því! Hin árlega BIG KAHUNA átkeppni Priksins verður haldinn næstkomandi laugardag -25.maí!

Aðeins komast tíu keppendur að, en eitt þeirra sæta er frátekið fyrir núverandi átmeistara frá því í fyrra sem fær tækifæri til að verka titilinn.

Big Kahuna er rosalegur hamborgari, 3 hæða með flest öllu því áleggi sem hægt er að skella milli brauðs og kets. Ásamt 5 dollar mjólkurhristingnum sem fylgir með er um að ræða hátt í 1.3 kg af mat. Keppt er í tímatöku, fyrstur til að klára af disknum! Vert er að taka fram að Prikmetið í keppninni er 3 min og 24 sekúndur, en það var sett fyrir 2.árum…

Verðlaunin eru í formi inneignar uppá 10 Big Kahuna máltíða, auk farandsbikars og einfaldlega það stolt sem fylgir því að hafa sigrað þessa keppni…

Næsta laugardag! Klukkan 13:00 og okkur hlakkar til að sjá ykkur, stelpur og stráka, allir aldurshópar eru leyfilegir endilega skorið á vini ykkar til að mæta og styðið við bakið á ykkar fólki!

Kær kveðja, Prikið.

ATH // Skráning fer fram í gegnum emailið bokanir@prikid.is // Fyrstir í forgang!



Event Details