World Narcosis and Dead Herring at Húrra (February 2, 2018)
Glundroða- og þungapönksveitirnar World Narcosis og Dead Herring halda saman til Bretlands um miðjan febrúar og hita upp fyrir ferðalagið með sameiginlegum tónleikum á Húrra föstudaginn annan febrúar.
Báðar sveitir hafa verið afar iðnar við tónleikahald undanfarið ár og gáfu út hvor sína breiðplötuna í desember síðastliðnum, World Narcosis sendi frá sér Lyruljóru en Dead Herring plötuna Drowned in Rock.
Ásamt þeim munu ROHT og TEENAGE LIGHTNING spila.
DJ DOMINATRICKS taka við að tónleikum loknum, klukkan 00:30.
WORLD NARCOSIS er illskilgreind súpa volæðis og óreiðu í stöðugri mótun.
DEAD HERRING er ærandi tryllingstríó sem teygir sig hvert sem hugurinn leitar.
ROHT er frumstætt og öskureitt óhljóðapönks tvíeyki frá Reykjavík.
Teenage Lightning er tilraunakennt og leitandi raftónlistarverkefni frá Póllandi, búsett á Íslandi.
Aðgangseyrir er litlar ÞÚSUND KRÓNUR en Why not? Plötur verður með plötubás með alls kyns gersemum.
2500kr. fyrir LP, 1000kr. fyrir 7″.
Previous Event Next Event