ValentínusarDjass / Innkoma frá Sigríði Thorlacius og hljómsveit
Hin eina sanna Sigríður Thorlacius er sérstakur gestur Bryggjunnar Brugghús á Valentíunusardaginn, næstkomandi þriðjudag og flytur nokkur lög með hljómsveit kvöldsins.
Í tilefni dagsins verður talið í notalegan jass og stígur Sigríður á svið og flytja nokkur lög með sveitinni sem skipuð er þeim Andra Ólafssyni, Einari Scheving og Kjartani Valdemarssyni. Hljómsveitin leikur svo úrval notalegra og hljómfagra jass laga. Óhætt er að lofa einstakri og rómantískri stemmningu á þessum degi ástarinnar.
Nýbúið er að fínpússa matseðla Bryggjunnar Brugghús. Vinsælir og klassískir réttir halda sínum stað á seðlunum auk frábærra viðbóta. Meðal þess sem bætist á kvöldverðarseðilinn er andalæri borið fram með kartöflusmælki og salati, léttsaltaður þorskur borinn fram með rísottó, tómatsultu og nípumauki og sveppa-hnetu krókettum & hægelduðum gulrótum borið fram með rístottó og nípumauki. Það eiga því allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Eldhús Bryggjunnar Brugghús er opið til klukkan 22.00. Vinsamlegast hafið samband í síma 456 4040 / booking@bryggjanbrugghus.is til þess að bóka borð.
Previous Event Next Event