Útgáfutónleikar Danimal & Bara Heiða á Húrra
Tónlistarsystkinin Bara Heiða og Danimal gáfu nýlega út plötuna „Danimal – Says Hi. Bara Heiða – So Do I“ sem hlaut frábærar viðtökur.
Platan er einstaklega skemmtilega uppbyggð þar sem lög Danimal hljóma á fyrri helming plötunnar en Bara Heiða fær að njóta sín á þeim seinni – Sannkölluð systkinaplata!
Systkinin hafa lengi verið viðloðandi tónlistarsenuna og vakið athygli sitt í hvoru lagi.
Bara Heiða (Heiða Dóra Jónsdóttir) hefur átt þó nokkra smelli á síðustu árum þar sem léttleikandi og skemmtilegar tónar í bland við áhugaverða og kímna texta hafa vakið verðskuldaða athygli. Lög hennar hafa reglulega sést á vinsældarlistum útvarpsstöðva og munu án efa halda áfram að gera það í náinni framtíð.
Danimal (Daníel Jón Jónsson) hóf ungur að aldri að semja og spila tónlist en aðeins 16 ára gamall byrjaði hann að troða upp á börum Reykjavíkur. Síðan þá hefur hann varla slegið slöku við, m.a. stofnað indíhljómsveitina Hide Your Kids, þar sem hann er bæði söngvari og lagahöfundur, ásamt því að gefa út smáskífur og skemmtileg tónlistarmyndbönd.
Í tilefni af góðum viðtökum plötunnar ætla þau systkini að halda langþráða útgáfutónleika á Húrra þann 20. apríl.
Miðasala er hafin á:
https://tix.is/is/event/5846/utgafutonleikar-danimal-og-bara-hei-a-a-hurra/
Einnig verður hægt að kaupa miða við inngang.
Að sjálfsögðu verður platan til sölu á svæðinu og á dúndurtilboði.
Tónleikarnir hefjast einn bjór yfir 21:00. Vonumst til að sjá sem flesta!
Previous Event Next Event