SunnuDjass / Sjana og Guttarnir
ENGLISH BELOW / FREE ENTRANCE
Kjarnorkukonan Kristjana Stefánsdóttir og þrír groove-guttar munu stíga á svið á Bryggjunni nk. sunnudagskvöld, en herlegheitin hefjast 20.00 og frítt er inn. Guttarnir eru Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague og hinn eini sanni Matthías M.D. Hemstock.
Ameríska söngbókin verður meginuppspretta efnisskrárinnar og má búast við að gangtegundir spanni allt frá lötrandi ballöðufeti upp í gáskafullt blúsbrokk.
Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.
Látið ykkur ekki vanta! Miðaverð einungis… nei, alveg rétt: FRÍTT INN!
/
Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Performing are singer Kristjana Stefánsdóttir with Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague and Matthías M.D. Hemstock.
Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event