SunnuDjass / Ljúfur og léttur jóladjass
Næsti og jafnframt síðasti SunnuDjass ársins verður skipaður þeim Hirti Ingva Jóhannssyni, Þorvaldi Þór Þorvaldssyni á trommum, Þórði Högnasyni á bassa og Snorra Sigurðarsyni á trompet. Þeir félagar leika léttan jóladjass ásamt sínum uppáhalds standördum og óhætt að lofa notalegri og jólalegri stemmningu á Bryggjunni Brugghús.
Eldhús Bryggjunnar er venju samkvæmt opið til 22.00 og hægt er að panta ljúffenga rétti af barseðli auk þess sem fjölda valinkunna bjórtegunda, sem margar hverjar eru bruggaðar á staðnum, er auðvelt að nálgast á barnum.
Desembermánuður er annálaður fyrir notalegheit og SunnuDjassinn tilvalin til þess að keyra sig rakleitt í kósýgírinn og búa undir komandi átök sem fylgja jólahátíðinni.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.
/
SunnuDjass, Bryggjan’s Brugghús weekly live jazz will take place as usual next sunday but this is the last sunday night jazz of the year 2016. Musicians Hjörtur Ingvi Jóhannesson, Þorvaldur Þór Þorvaldsson, Þórður Högnason and Snorri Sigurðarson will play some easy on the ears christmas tunes plus some of their favorite jazz standards.
Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event