SunnuDjass / Kvartett Sigurðar Flosasonar
Kvartett Sigurðar Flosasonar kemur fram á SunnuDjassi Bryggjunnar næstkomandi sunnudag. Svo skemmtilega vill til að Sigurður á afmæli á sunnudaginn, þannig að það verður hátíðarstemmning. Leiknir verða standardar, sérvaldir af Sigurði. Ásamt Sigurði leika þeir Hjörtur Ingvi Jóhannsson og Magnús Trygvason Eliassen.
Eldhús Bryggjunnar er venju samkvæmt opið til 22.00 og hægt er að panta ljúffenga rétti af barseðli auk þess sem fjölda valinkunna bjórtegunda, sem margar hverjar eru bruggaðar á staðnum, er auðvelt að nálgast á barnum.
SunnuDjassinn hlýtur að tikka í boxið sem tilvalin upplyfting í janúar sem er af mörgum talinn erfiðasti mánuður ársins.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.
/
Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Performing are Sigurður Flosason, Hjörtur Ingvi Jóhannsson and Magnús Trygvason Eliassen.
Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event