-

SunnuDjass / Ellington í HAM

Feb 26, 2017 @ 8:00 pm  —  Feb 26, 2017 @ 11:00pm

ENGLISH BELOW

Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir. Hið eina sanna HAM-tríó mun leggja undir sig Bryggjuna Brugghús á sunnudagskvöldið og boða fagnaðarerindi Duke Ellington á SunnuDjassi.

Tríóið er gestum SunnuDjass vel kunnt, þótt nafnið sé nýtt af nálinni, en þeir H(jörtur Ingvi Jóhannson), A(ndri Ólafsson) og M(agnús Trygvason Eliassen) hafa verið svo gott sem húsband Bryggjunnar frá upphafi, yfirleitt með gestum standandi í stafni. Að þessu sinni ætla þeir að taka tríónálgun á tónsmíðar Ellingtons, sem voru allar frumfluttar af stórsveit hans en hafa verið gríðarmikið spilaðar af öðrum í gegnum tíðina. Þarna verða fluttar perlur sem allir djassunnendur þekkja, en líka fáheyrðara efni.

Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.

Látið ykkur ekki vanta! Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.

/

Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Performing are the HAM trio: Hjörtur Ingvi Jóhannsson, Andri Ólafsson and Magnús Trygvason Eliassen. The trio will play a mix of works of Duke Ellington.

Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.

Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!

Entry free like usually.



Event Venue


  • Venue
    Bryggjan Brugghús
  • About
    We are a bar, bistro and brewery in the popular Grandi area by Reykjavík Harbor. Drop by for a tour of our brewery a good meal or just some of our otherworldly beer that we of-course brew on site. Kitchen open from 11:30 to 22:30 Thu-Sat and 22:00 Sun-We
  • Email
    booking@bryggjanbrugghus.is
  • Follow On

Event Details