Stafrænn Hákon & Akan á Húrra
May 31, 2017 @ 9:00 pm — May 31, 2017 @ 11:30pm
Hljómsveitirnar Stafrænn Hákon og Akan ætla að vera með tónleika á Húrra, miðvikudaginn 31. maí. kl 21.00. Húsið opnar kl. 20.
Stafrænn Hákon er um þessar mundir að undirbúa útgáfu á sinni 10. breiðskífu sem er í söfnun á Karolina Fund. Þeir ætla að flytja efni af þeirri plötu ásamt eldra efni.
Akan er ný íslensk rokkhljómsveit sem leikur melódískt rokk og er skipuð þaulreyndum rokkhundum.
Miðaverð er 1.500 ISK
Previous Event Next Event