Sígild Jól & Myrkar Ábreiður
Dec 20, 2017 @ 9:30 pm — Dec 20, 2017 @ 11:30pm
Daníel Hjálmtýsson syngur inn jólin á Hard Rock Café við Lækjargötu þann 20.desember nk.
Ásamt Daníel eru það þeir Hálfdán Árnason (kontrabassi), Magnús Jóhann Ragnarsson (hljómborð, píanó og orgel) og Skúli Gíslason (trommur) sem mynda Daníel Hjálmtýsson Band þessa aðventuna.
Strákarnir, sem leikið hafa fjölmörg verkefni saman hingað til, munu leika íslensk og erlend jólalög frá gamla tímanum ásamt því að breiða yfir nokkur af þeirra uppáhaldslögum í skammdeginu í desember.
,
Miðasala hefst miðvikudaginn 1.nóvember nk. á Tix.is og er miðaverð í forsölu er 2.000 krónur.
Miðaverð við hurð 2.900 krónur.
Tónleikar hefjast 21.30
húsið opnar kl. 21.00
Takmarkaður miðafjöldi
Previous Event Next Event