Pub quiz á Húrra: Pabbar
Sep 13, 2017 @ 8:00 pm — Sep 13, 2017 @ 10:00pm
Vinirnir Snorri Helgason, tónlistarmaður og Steinþór Helgi Arnsteinsson, Gettu Betur mógúll og djammari eru mikið að pæla í pöbbum þessa dagana. Og nei ekki þannig pöbbum! HAHAHAHA! Þeir eru báðir að verða pabbar í fyrsta sinn á næstu mánuðum.
Þeir ætla því að koma þessum hugsunum niður á blað og búa til pub quiz úr því. Pabbar, feður og allt þar á milli verða tekin fyrir í þessu quizi.
Dagskrá hefst kl. 20 og það er frítt inn og það verða geggjuð tilboð á barnum allt kvöldið.
Vegleg verðlaun í boði!
Previous Event Next Event