Moses Hightower á Húrra 2. & 3. mars 2018
Mar 2, 2018 @ 9:00 pm — Mar 3, 2018 @ 11:59pm
Tvö dýrðleg kvöld í röð ætlar hljómsveitin Moses Hightower að halda tónleika á Húrra: Föstudagskvöldið 2. mars, og laugardagskvöldið 3. mars.
Platan þeirra, Fjallaloft, er ennþá ylvolg, því auk titillagsins hafa „Feikn“, „Trúnó“, „Snefill“ og nú síðast „Geim“ gert það skrambi gott á öldum ljósvakans. Vel valin lög af Annarri Mósebók og Búum til börn munu svo slæðast með og fullkomna kvöldin.
Hús opnar kl. 21. Miðasala á tix.is!
Previous Event Next Event