GÓSS tónleikar á Bryggjunni
Aug 3, 2017 @ 10:00 pm — Aug 4, 2017 @ 12:00am
GÓSS heldur tónleika á Bryggjunni Brugghúsi í Reykjavík, fimmtudagskvöldið 3. ágúst.
Athugið að takmarkað magn miða er til sölu en hægt er að tryggja sér miða hér: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/4452/
Tónleikarnir hefjast kl. 22.
Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, þau Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, lögðu í júlí land undir fót og komu fram á nokkrum vel völdum tónleikum víðsvegar um land, undir nafninu GÓSS. Með í för var Guðmundur Óskar, bróðir Sigurðar og meðleikari Sigríðar úr Hjaltalín.
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bæta við einum tónleikum í höfuðborginni og endar því tónleikarferðin formlega með tónleikunum á Bryggjunni.
Previous Event Next Event