Formaðurinn kynnir: Hin Hliðin # 2
Ný mánaðarlega kvöld á Kaffibarnum þar sem landsþekktir plötsnúðar, tónlistarmenn, hönnuðir og hipsterar sýna á sér hina hliðina.
Leikreglurnar eru eftirfarandi:
2 leikmenn + gestir.
1) Plötusnúður kvöldsins spilar tónlist úr safni sínu sem sýnir aðra hlið á viðkomandi en almenningur þekkir.
1,5) Fyrstu gestum kvöldsins verður boðið upp á kverkvætandi veigar frá Grolsh á meðan birgðir endast.
2) Myndskreytari kvöldsins gefur tónlistinni myndrænan leikvöll. Myndefni verið teiknað eða sérvalið úr einkasafni listmannsins.
3) Bæði plötusnúður og myndskreytari skora svo á kollega úr hvorri starfsgrein til að taka að sér framkvæmd næsta kvölds.
4) Umsjón kvöldanna er í höndum formannsins (og er hann einnig sérlegur verndari og ábyrgðarmaður).
5) Sigurvegari kvöldsins er síðan sérhver gestur er hefur gaman af.
Plötusnúður kvölds númer 2 er DJ Frímann og myndskreytari er Veronika Gorbačova.
Previous Event Next Event