FLÓAMARKAÐUR PRIKSINS!
Apr 13, 2013 @ 1:00 pm — Apr 13, 2013 @ 6:00pm
Flóamarkaður á Prikinu! Laugardaginn 13. apríl!
Næstkomandi laugardag verður flóamarkaður á Prikinu, það er öllum frjálst að mæta með skran, glingur, fatnað, bækur, og eiginlega bara hvað sem er milli himins og jarðar!
Markaðurinn verður í Portinu og á neðri hæð Priksins á milli 13:00 og 18:00, veðurspáin er flott og verður hægt að skapa frábæra stemmingu á þessum degi.
Þeir sem hafa áhuga á því að vera með stall/bás, endilega hafiði samband í gegnum bokanir@prikid.is
Með bestu kveðjum, Prikið.
Previous Event Next Event