-

CYBER – Horror Útgáfutónleikar á Húrra

Oct 13, 2017 @ 9:00 pm  —  Oct 14, 2017 @ 12:00am

CYBER gefa út sína fyrstu breiðskífu ásamt Sticky Plötuútgáfu föstudaginn 13.október. Í tilefni af því ætla skúzurnar að halda útgáfutónleika samdægurs til þess að frumflytja nýja efnið.
Á staðnum verður hægt að kaupa merch sem var sérstaklega hannað fyrir útgáfuna af Grétu Þorkelsdóttur og Örnu Beth

Um upphitun sér Young Karin svo það er um að gera að mæta snemma!

Platan er unnin í samstarfi við fjölmargt tónlistarfólk og munu nokkur þeirra stíga á svið með CYBER
Um er að ræða:

Emmsjé Gauti
HATARI
Karó
Geimfarar
Young Karin
McBlær

1500 kr í forsölu á tix.is
2000 kr við hurð

CYBER er samstarfsverkefni þeirra Sölku Valsdóttur, Jóhönnu Rakelar og Þuru Stínu Kristleifsdóttur. Hljómsveitin kom fyrst fram í íslenskri tónlistarsenu síðasta haust með útgáfu á sinni fyrstu smáskífu að nafninu CRAP sem hlaut mikið lof frá gagnrýnendum og var nefnd meðal bestu plata ársins 2016 á yfir 10 árslistum. Síðan þá hefur hljómsveitin leyst út þriggja laga smáskífuna BOYS, en hún var fyrsta plata ársins þar sem hún var gefin út eina mínútu yfir miðnætti á nýju ári, og singúlinn DADDY. CYBER eru þekktar fyrir spennandi sviðsframkomu, einstaklega vandaða fagurfræði og tilraunastarfsemi í rapptónlist. HORROR er fyrsta breiðskífa CYBER.



Event Venue


  • Venue
    Húrra
  • About
    Reykjavík's premier live music venue and the place to have a great night out. Voted "Best for live music" and "Best All-Around Bar" in The Reykjavík Grapevine 2015, 2016 & 2017. Booking inquiries: booking@hurra.is
  • Email
    booking@hurra.is
  • Follow On

Event Details