-

Cell7, Hildur og Two Toucans á Húrra

Nov 24, 2017 @ 9:00 pm  —  Nov 25, 2017 @ 12:00am

Cell7, Hildur og Two Toucans troða öll upp á Húrra föstudaginn 24. nóvember.

Tónlistarkonan Hildur kom fram á sjónarsviðið 2016 þegar hún gaf út fyrsta lag sitt I’ll Walk With You. Lagið naut mikilla vinsælda í útvarpi og fékk í kjölfarið Íslensku Tónlistarverðlaunin sem popplag ársins. Hildur var einnig tilnefnd sem Bjartasta Vonin á Íslensku Tónlistarverðlaununum. Eftir að hafa gefið út nokkur lög gaf svo Hildur út EP plötuna Heart to Heart í maí 2017. Hún kom fram á öllum helstu hátíðum landsins síðastliðið ár og hefur getið sér gott orð fyrir líflega og kraftmikla framkomu á sviði. Áður en Hildur hóf sólóferil sinn var hún í indie-hljómsveitinni Rökkurró og hefur komið fram með ýmsum tónlistarmönnum gegnum árin – má þar helst nefna Cell7! Hildur vinnur nú að nýju efni sem er væntanlegt 2018.

Two Toucans er draumkennt/electro/hip-hop dúó sem samanstendur af systkinunum Kristrúnu Lárusdóttir Hunter (söngur) og Fonetik Simbol (pródúser). Þau byrjuðu að gera tónlist saman árið 2011 en höfðu fyrir það samið tónlist hvort í sínu lagi í einhvern tíma. Systkinunum hefur alltaf verið líst sem skapandi, hógværum og rólegum einstaklingum og það skín vel í gegnum tónlistina þeirra. Þungir taktar Fonetiks í bland við blíða rödd Kristrúnar verða að einhverju einstöku. Smáskífan þeirra Shame EP (2015) er aðgengileg bæði á Spotify og Bandcamp.

Cell7 gaf út plötuna Cellf í lok árs 2013. Var það hennar fyrsta sólóplata og hlaut hún glimrandi móttökur. Vinnur hún núna að nýrri plötu sem mun koma út 2018. Myndband við lagið City Lights kom út á dögunum og gefur það forsmekkin af því sem kom skal á nýrri plötu. Cell7 mun leika glænýtt efni í bland við eldri lög á Húrra.

Aðgangseyrir: 2000 kr.

Sjáumst á Húrra!



Event Venue


  • Venue
    Húrra
  • About
    Reykjavík's premier live music venue and the place to have a great night out. Voted "Best for live music" and "Best All-Around Bar" in The Reykjavík Grapevine 2015, 2016 & 2017. Booking inquiries: booking@hurra.is
  • Email
    booking@hurra.is
  • Follow On

Event Details