-

Brjánsi Nr.52 kynntur & fleira skemmtilegt á Lebowski Bar

Sep 1, 2017 @ 5:00 pm  —  Sep 1, 2017 @ 8:00pm

Nýjasti meðlimur Borgar fjölskyldunnar, BRJÁNSI Nr.52, súrbjór, verður kynntur til leiks á Lebowski bar næsta föstudag. Í tilefni að komu Brjánsa verður einnig til smökkunar, í fyrsta skipti á Íslandi, bjórinn Blóðberg sem er samstarfsverkefni Borgar og Four Winds frá Delta í Kanada, en hefur sá bjór fengið frábærar viðtökur í Ameríku.

Við munum bjóða ykkur upp á fyrstu kútana af Brjánsa og Blóðbergi fyrir þá sem mæta tímalega en í tilefni af þessari veislu verður einnig í gangi kranayfirtaka hjá Borg á barnum þar sem verði verður sérstaklega stillt í hóf.

Kynning og smökkun byrjar á slaginu kl.17:00. Tilvalið að enda vinnuviku með að kíkjá á Lebowski bar og gæða sér á eðal bjórum frá meisturum Borg Brugghús. Sjáumst!

Um Brjánsa
Brjánsi Nr.52 er 4% súröl, ketilsýrt. Syndsamlega svalandi og ferskur en á sama tíma frekar kreandi týpa. Alveg ógleymanlegur karakter. Kannski ekki að undra miðað við alla sýruna sem hann hefur droppað. Unnuuur.

Um Blóðberg
Blóðberg er 5,5% villigerjað öl, þroskað í eikar-„foedre“ tanki með plómum og hinu séríslenska blóðbergi. Bjórinn er samstarfsverkefni Borgar Brugghúss og hins margrómaða Four Winds brugghúsi í Delta, á vesturströnd Kanada. Blóðberg var bruggað í brugghúsi Four Winds vorið 2016, hefur hlotið frábærar viðtökur ytra og er þegar uppselt. Við vorum svo heppin að Borg var að fá örfáa kúta til landsins og verður þetta í fyrsta skipti sem boðið verður upp á bjórinn utan Ameríku.



Event Venue


  • Venue
    Lebowskibar
  • About
    Lebowski Bar - The Reykjavik venue that rocks!
  • Email
    info@lebowskibar.is
  • Follow On

Event Details