-

BIG KAHUNA KEPPNI PRIKSINS!

Apr 24, 2014 @ 1:00 pm

Þá er komið að árlegum og goðsagnakenndum atburði hjá okkur á Prikinu, en BIG KAHUNA keppnin okkar verður haldin þriðjudaginn 22. apríl 2014.

Þetta er átkeppni mikil þar sem keppt er í tímatöku við át á Big Kahuna hamborgaranum af matseðli okkar, 5 dollara milkshake og frönskum með. Alls heil 1.4 kg af rugli og vitleysu! Vert að taka fram að metið í tímatökunni eru aðeins 3 mínútúr og 17 sekúndur.
Til mikils að vinna, en 10 x Kahuna máltíðir á Prikinu, ásamt farandbikar miklum og auðvitað heiðrinum sem fylgir titlinum BIG KAHUNA MEISTARI PRIKSINS 2014 eru til verðlauna!
Einnig eru aukaverðlaun í boði fyrir besta stuðningsliðið en þau verða kynnt síðar.

Hefst keppni stundvíslega klukkan 13:00 á fimmtudeginum og við tökum fram STUNDVÍSLEGA!

Alls komast 10 manns að í keppnina, og við hvetjum alla matháka og átmaskínur til að koma og láta ljós sitt skína. Vert að taka fram, að eitt þessa sæta er frátekið fyrir meistarann í fyrra.

Skráning fer fram í gegnum veffangið bokanir@prikid.is og okkur hlakkar til að sjá ykkur!



Event Venue


  • Venue
    Prikið Kaffihús
  • About
    Prikið er málið...
  • Email
    prikid@prikid.is
  • Follow On

Event Details