Between Mountains & Omotrack á Húrra
Apr 27, 2017 @ 10:00 pm — Apr 27, 2017 @ 11:00pm
Hljómsveitirnar Between Mountains og Omotrack halda saman tónleika fimmtudaginn 27. apríl næstkomandi á Húrra.
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00
1000 kr inn
Between Mountains skaust upp á stjörnuhimininn í byrjun þessa mánaðar. Hljómsveitin samanstendur af tveim stelpum frá Vestfjörðum.
Þær sigruðu Músíktilraunir og spiluðu á Aldrei fór ég suður fyrr í þessum mánuði.
Omotrack (Omotrack.com)
Bræðurnir Markús og Birkir og brass quartetið hafa spilað víða seinustu tvö árin og vakið mikla athygli. Plata þeirra Mono & Bright er plata vikunnar á Rás 2 og hefur hún fengið góðar undirtektir.
Báðar þessar hljómsveitir munu koma fram á Iceland Airwaves 2017.
Einstakir tónleikar hér á ferð sem þú vilt ekki missa af!
Previous Event Next Event