Árslistakvöld PartyZone 2017 – DJ Yamaho – Már & Nielsen
Jan 20, 2018 @ 8:00 pm — Jan 21, 2018 @ 4:30am
Hinn árlegi spariþáttur PartyZone, Árslistinn 2017, verður framinn í allri sinni dýrð laugardagskvöldið 20.janúar á Xinu 977. Plötusnúðarnir hafa skilað inn sínum árslistum og PartyZone hefur tekið á móti atkvæðum frá hlustendum og áhugafólki um góða danstónlist. PZ listar ársins sem leið er síðan hent inní púkkið sömuleiðis og úr verður Árslisti PartyZone 2017.
Kl 20:00 til miðnættis fllytjum við Topp 50 og förum með dansannál ársins sem leið.
Kaffibarinn hýsir síðan okkar árlega árslistakvöld en DJ Andrés mun setja fyrstu plötuna á fóninn kl 22…og við öll munum hópast þangað og dansa af okkur sokkana. DJ Yamaho klárar svo kvöldið og rífur þakið af kofanum.
Takið frá kvöldið!
Previous Event Next Event