Þorláksmessutónleikar Jónasar Sig og Ritvéla framtíðarinnar
—MIÐASALA HEFST KL 12:00 FÖSTUD. 27. OKTÓBER—
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar ætla að nú halda Þorláksmessutónleika í annað sinn í hinum glæsilega kjallara Hard Rock Cafe Reykjavik 23 desember!
Síðast seldist upp á einum degi og það má búast við því sama í ár.
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög hlotið verðskuldaða athygli og mörg ratað hátt á vinsældarlista landsins.
Á tónleikunum verður hægt að kaupa best of plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, en sú plata kom út í fyrra og hefur bara fengist á tónleikum hljómsveitarinnar.
HÚSIÐ OPNAR KL 21.30
TÓNLEIKAR HEFJAST KL 22.00
Takmarkaður miðafjöldi
Previous Event Next Event