Uppistand með Begga Blinda & Elvu Dögg
Sep 7, 2012 @ 10:00 pm — Sep 8, 2012 @ 12:00am
Beggi blindi á að baki langan uppistandsferil frá því hann sigraði Fyndnasta mann MH 2004 og hefur komið fram um allt landið. Húmorinn hans gefur svarta sýn á tilveruna, enda er hann blindur eins og nafnið gefur til kynna.
Elva Dögg Gunnarsdóttir er tiltölulega ný í uppistandi en hefur fljótt gripið mikla athygli í bransanum. Hún er eini uppistandarinn á Íslandi með Tourette heilkenni og er frumlegur og blátt áfram grínisti sem gerir óspart grín að sjálfri sér og tilverunni.
Previous Event Next Event