Hrútskýrir á bóndadaginn / Uppistand og fríir bruggtúrar
Það verður öllu til tjaldað í tilefni þorrans á Bryggjunni Brugghús. Þorraplattar, uppistand, Hrútsskýrir og fríkeypis bruggtúr fyrir matargesti!
Á sjálfan bóndadaginn þann 20. janúar næstkomandi verður nóg um að vera. Matargestum verður boðið í fríkeypis bruggtúr og boðið verður upp á örlítið bjórsmakk áður en sest er niður til bóndadagskvöldverðar. Vinsamlegast athugið að bruggtúrarnir hefjast á heila tímanum frá klukkan 16.00 næstkomandi föstudag og eru aðeins fyrir matargesti.
Klukkan 22.00 verður talið í uppistand í bruggsalnum okkar. Þema brandarana verður samskipti kynjanna og munu neðanbeltisbrandarar ráða ríkjum.
Fram koma:
Bylgja Babýlons
York Underwood
Jón Ben
Í tilefni árstíðarinnar verða framreiddir þorraplattar á veitingastaðnum. Athugið að þorraplattarnir verða einungis á matseðli frá 20. janúar til 29. janúar. Þorraplattinn kemur í tveimur útfærslum; hefðbundinni og vegan. Verð á þorraplatta er 3.200 kr.
Líkt og áður sagði fylgir þorrabjór Bryggjunnar, Hrútskýrir með þorraplattanum. Bjórstíllinn er Gose sem er gamall þýskur bjórstíll. Hrútskýrir lætur í sér heyra á dælunum en hann er bæði súr og saltur. Þorrabjórinn er aðeins í takmörkuðu magni og því vissara að hafa hraðar hendur áður en kútarnir klárast.
Fyrir bókanir og frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við booking@bryggjanbrugghus.is eða hringið í síma 456 4040.
Previous Event Next Event