-

Prins Póló / Live á Bryggjunni Brugghús

Jan 27, 2017 @ 10:00 pm  —  Jan 27, 2017 @ 11:55pm

ENGLISH BELOW / FREE ENTRANCE

Hvað: Tónleikar með Prins Póló
Hvenær: Föstudaginn 27. janúar, klukkan 22.00
Hvar: Bryggjan Brugghús
Aðgangur ókeypis

Hljómsveitina Prins Póló er óþarfi að kynna enda sveitin átt ófáa smellina og flestir ættu að vita að tónleikar með Prins Póló eru ávísun á þrælgóða skemmtun. Prinsinn sjálfur, Svavar Pétur Eysteinsson, er þekktur fyrir líflega og skemmtilega sviðsframkomu og lög sveitarinnar einkar áheyrileg.

Prinsinn býr ásamt eiginkonu sinni Berglindi Häsler, sem einnig er meðlimur í Prins Póló, á Karlsstöðum austur á landi og er því tónleikahald í höfuðborgin ekki vikulegur viðburður. Á Karlsstöðum rekur fjölskyldan meðal annars veitinga- og viðburðarýmið HAVARÍ og einnig framleiða þau ýmisskonar matvöru.

Einnig er ánægjulegt að greina frá því að Bryggjan Brugghús býður upp á Bulsur grænmetispulsur í aðalrétt á þorramatseðli sínum fyrir hópa. Frekari upplýsingar um þorraveislu og bókanir í síma 456 4040 / booking@bryggjanbrugghus.is.

Í ljósi alls þess sem talið er upp hér fyrir ofan mun Bryggjan Brugghús bjóða upp á tónleika með Prins Póló næstkomandi föstudag, 27. janúar og gera má ráð fyrir að tónleikarnir hefjist upp úr klukkan 22.00. Það er því ekki úr vegi að gera vel við sig nú þegar janúar er að líða undir lok og sól hækkar á himni.

Eldhús Bryggjunnar er opið til klukkan 23.00 og við minnum svo á sjálfsögðu á gleðistundina okkar sem stendur frá 16.00 til 19.00. Borðapantanir í síma 456 4040 / booking@bryggjanbrugghus.is

Aðgangur á tónleikana er ókeypis og allir boðnir velkomnir!

/

Icelandic band Prins Póló will be performing live at Bryggjan Brugghús next friday, 27th of January.

Everyone who have heard the band perform know their lively stage performance and their catchy songs. The frontman of Prins Póló, Svavar Pétur Eysteinsson and Berglind Häsler, keyboard player of the band live with their family at farm Karlsstaðir where they run the HAVARÍ café, food production, guesthouse, and art shed.

Our kitchen is open until 23.00 on fridays and we have a daily happy hour from 16.00 – 19.00. Book your table by calling 456 4040 / booking@bryggjanbrugghus.is.

Free entry!



Event Venue


  • Venue
    Bryggjan Brugghús
  • About
    We are a bar, bistro and brewery in the popular Grandi area by Reykjavík Harbor. Drop by for a tour of our brewery a good meal or just some of our otherworldly beer that we of-course brew on site. Kitchen open from 11:30 to 22:30 Thu-Sat and 22:00 Sun-We
  • Email
    booking@bryggjanbrugghus.is
  • Follow On

Event Details