
Þorláksmessutónleikar Jónasar Sig og Ritvéla framtíðarinnar
Dec 22, 2017 @ 10:00 pm — Dec 22, 2017 @ 11:59pm
— Aukatónleikar – Miðasala hafin á Tix.is —
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar bæta við aukatónleikum í hinum glæsilega kjallara Hard Rock Cafe Reykjavik 22. desember!
Síðast seldist upp.
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög hlotið verðskuldaða athygli og mörg ratað hátt á vinsældarlista landsins.
Á tónleikunum verður hægt að kaupa best of plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, en sú plata kom út í fyrra og hefur bara fengist á tónleikum hljómsveitarinnar.
HÚSIÐ OPNAR KL 21.30
TÓNLEIKAR HEFJAST KL 22.00
Takmarkaður miðafjöldi
Previous Event Next Event