
Stattupp!
Þá er komið að því! Vegna mikillar eftirspurnar ætlar Goldengang Comedy að byrja með íslensk open mic kvöld einn sunnudag í mánuði á Gauknum Fyrsti sunnudagurinn verður á miðvikudegi.
Kynnir og umsjónarmaður þessara kvölda er hin sívinsæla Bylgja Babýlons! Bylgja hefur verið með uppistand á Íslandi og víða um Evrópu, hún er fastur liður í uppistandskvöldunum Hí á Húrra með Híenunum, og hún leiddi litla uppreisn í lítið þekktu ríki í Indonesíu.
Á kvöldunum munum við sjá ný andlit kanna getu sína til að vera fyndin á sviði í fyrsta sinn og einnig gömul andlit sem margir eru komnir með leið á æfa sig og prufa nýtt efni.
Fram koma meðal annars:
Þóhallur Þórhallsson
Hrafn-Sunna Ross
Þórdís Nadía
Helgi Jean
Snjólaug Lúðvíks
Andri Ívarsson
Fannar Guðmundsson
Bjarni Töframaður
Hugleikur Dagsson
Previous Event Next Event