-

Sóli Hólm á Hard Rock Cafe Kjallaranum 1-2.feb og 1-2.mars

Feb 1, 2018 @ 8:00 pm  —  Mar 24, 2018 @ 10:00pm

Uppselt 1-2.feb.
Um að gera að næla sér í miða 1-2.mars á Tix.is

Sóli Hólm hefur verið einn vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar síðustu ár ásamt því að hafa getið sér gott orð í sjónvarpi og útvarpi.

Eftir að hafa þurft frá að hverfa um nokkurra mánaða skeið vegna veikinda snýr hann aftur með splunkunýtt uppistand, tilbúinn að draga sjálfan sig og aðra sundur og saman í háði.

Sóli er maður margra radda og má búast við að þjóðþekktir einstaklingar fylgi honum í einhverri mynd upp á svið í kjallaranum á Hard Rock.

Að mæta á þennan viðburð myndi teljast mjög skynsamleg ráðstöfun frítíma.



Event Venue


  • Venue
    Hard Rock Cafe Reykjavik
  • About
    Hard Rock Café Reykjavik
  • Email
    info@hrcreykjavik.com
  • Follow On

Event Details