Ring of Gyges á Hard Rock Café – 14.júlí
“Ring of Gyges er íslensk proggmetalsveit sem er í þann mund að gefa út sína fyrstu breiðskífu. Um er að ræða afar metnaðarfullt verk sem nefnist Beyond the Night Sky og kemur vonandi í sölu von bráðar. En til þess að mixa plötu þarf peninga, til þess að prenta plötu á geisladiska þarf peninga, og til þess að gefa út plötu þarf peninga. Þess vegna blæs sveitin til söfnunartónleika föstudaginn 14.júlí á Hard Rock Café! Ágóðinn af miðasölunni verður nýttur í að koma þessari plötu út í kosmósinn, og einnig verður hægt að leggja til frjáls framlög.
Fyrri verk Ring of Gyges eru á Bandcamp:
https://ringofgygesband.bandcamp.com/
Það eru svo engir aðrir en gulldrengirnir í Future Figment sem hita upp! Plötuna þeirra, ‘Qualm’, má finna á Spotify:
Tónleikarnir byrjar klukkan 22.00.
Opnar inn 21.00.
Miðaverð: 1000 kr.
Þetta verður brjálað partý!”
Previous Event Next Event