-

NOISE á Gauknum

Jul 2, 2016 @ 10:00 pm

NOISE – Gaukurinn – 02/07/16 – Frítt inn

Hljómsveitin NOISE gaf út fjórðu breiðskífu sína “Echoes” nýverið. Platan var tekin upp, hljóðblönduð og masteruð í stúdíóinu Hljóðverk á tímabilinu 2015-16. Hljóðheimur plötunnar er órafmagnaður og fékk hljómsveitin strengjasveit Mark Lanegan til liðs við sig í nokkrum lögum. Platan var í fyrstu einungis gefin út á CD en kom út á stafrænu formi þann 15.júní síðastliðinn.

NOISE halda að því tilefni tónleika á Gauknum, laugardaginn 2.júlí. Hljómsveitin mun spila plötuna í heild sinni á tónleikunum. Frítt er inn á tónleikana en þar verður einnig hægt að kaupa Echoes á sérstöku tilboði.

Hljómsveitina NOISE þekkja flestir en bandið hefur verið starfandi frá árinu 2001 og hafa þeir gefið út fjórar plötur, átt fjölda laga á vinsældarlistum hérlendis sem og erlendis. Árið 2013 vann hljómsveitin t.a.m til verðlauna fyrir lag sitt “A Stab In The Dark” í bandarísku tónlistarverðlaununum Sunset Island Music Awards en þar var umrætt lag valið lag ársins. Undanfarin misseri hefur hljómsveitin byggt upp sitt eigið hljóðver og unnið að gerð nýrrar tónlistar sem lítur nú einnig dagsins ljós á stafrænu formi.

Heimasíða NOISE: www.noiseIceland.com



Event Venue


  • Venue
    Gaukurinn
  • About
    Gaukurinn er tónleikastaður og bar í hjarta Reykjavíkurborgar. Nýlegar breytingar á staðnum hafa vakið mikla lukku - endilega komdu í heimsókn!
  • Email
    rekstrarstjori@gamligaukurinn.is
  • Follow On

Event Details