-

Margt býr í þokunni – Snorri Helgason Útgáfutónleikar á Húrra

Jan 17, 2018 @ 8:00 pm  —  Jan 17, 2018 @ 11:00pm

Útgáfu plötunnar Margt býr í þokunni með tónlistarmanninum Snorra Helgasyni verður fagnað 17. janúar nk. á tónleikastaðnum Húrra við Tryggvagötu. Á plötunni má finna safn 10 laga sem Snorri hefur samið við íslensku þjóðsögunar. Á tónleikunum koma fram ásamt Snorra þeir Örn Eldjárn, gítarleikari, Guðmundur Óskar Guðmundsson, bassaleikari og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ásamt litlum kór sem syngur í nokkrum laganna. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir (Lay Low) kemur einnig fram og syngur lagið um Selinn sem er að finna á plötunni og þau Snorri sömdu textan við saman.
Teitur Magnússon og Pétur Ben kíkja einnig við og hita upp mannskapinn.

Hús opnar kl. 20 og miðaverð er einungis 2000 kr.

Úr dómi Arnar Eggerts Thoroddsen og Andreu Jóns um Margt býr í þokunni á Rás 2.

„Það sem ég tek eftir, er að lögin hérna eru vel samin. Tíminn hefur unnið með Snorra. Þau eru pæld, unnin í hörgul, vel samsett og úthugsuð. Flest þeirra eru einföld og tiltölulega látlaus en þar liggur einmitt áskorunin. Það þarf vissu völundarins til að sníða út vel heppnaðan þriggja mínútna alþýðubrag, þar sem sá stakkur er fremur þröngur. Snorri er kominn á þann stað. Hann kann þetta og getur þetta. Margt býr í Snorra.”

The release of Snorri Helgason’s new album Margt býr í þokunni will be celebrated at Húrra on January 17th 2018. The album is a collection of folk songs Snorri has been writing for the past few years based on Icelandic folklore.
Joining Snorri on stage for the show will be Guðmundur Óksar Guðmundsson on bass, Örn Eldjárn on pedal steel guitar and Hjörtur Ingvi Jóhannsson on keyboards. They will be joined by a small choir on a few songs. Also appearing at the concert will be Lay Low and Teitur Magnússon.

Doors are at 8 pm and tickets are 2000 ISK.



Event Venue


  • Venue
    Húrra
  • About
    Reykjavík's premier live music venue and the place to have a great night out. Voted "Best for live music" and "Best All-Around Bar" in The Reykjavík Grapevine 2015, 2016 & 2017. Booking inquiries: booking@hurra.is
  • Email
    booking@hurra.is
  • Follow On

Event Details