
KvennaKraftur á Menningarnótt
Viðburðurinn KvennaKraftur verður haldinn á Gauknum, Tryggvagötu 22, og stendur frá 14:00 fram á nótt. Þar munu konur úr ýmsum áttum deila list sinni og sköpunarkrafti með gestum og gangandi. Tilgangur
viðburðarins er sá að beina kastljósinu að hlut kvenna í íslensku listalífi og sýna verk þeirra í öllum sínum fjölbreytileika. Dagskráin er þéttskipuð og nær til margra sviða, m.a. ljósmyndunar, leiklistar, tónlistar, uppistands og ljóðlistar.
Aðgangseyrir er enginn.
Dagskrá
(Ath. Þessi dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.)
14:00 til 23:00 – Ljósmyndasýning.
Ljósmyndarar: Anna Kristín Arnardóttir, Ása Magnea Vigfúsdóttir, Bergljót Arnalds, Briet Olga Dmitrieva, Ellen Inga, Elma Karen, Emilía Kristín Bjarnason, Esther Thor Halldorsdottir, Eva Rut Hjaltadottir, Heiða Halls, Heiða Helgadóttir, Heiður Erla Þormar, Helen María Björnsdóttir, Hrund Þórisdóttir, Liga Liepina, Rósa Braga, Sigrún Björk Einarsdóttir.
14:00 – Pallborðsumræður.
Nokkrar reynslumiklar konur ræða um störf sín og list.
Fram koma: Hildur Sverrisdóttir (höfundur bókarinnar Fantasíur), Wiktoria Joanna Ginter (útvarpskona og umboðsmaður), Andrea Jónsdóttir (plötusnúður), Kitty Von-Sometime (forstöðukona The Weird Girls Project), Áslaug Einarsdóttir (framkvæmdastýra Stelpur rokka!), Kristín Gunnlaugsdóttir (listakona) og fleiri flottar konur.
16:30 – Spunaleikhús – Femprov.
Í spunaverkinu Femprov munu 5 leikkonur úr Stúdentaleikhúsinu velta því fyrir sér hvernig þær upplifa sig sem konur á Íslandi í dag. Þær spyrja sig ýmissa spurninga um karlmennsku, kvenleika og #6dagsleikann.
Settur verður upp játningaleikur þar sem stelpurnar munu opna sig og deila með áhorfendum sinni reynslu og hugsunum. Öllum áhorfendum verður frjálst að taka þátt í leiknum. Saman munu stelpurnar búa til spuna úr játningunum.
Leikkonur: Berta Andrea Snædal, Hildur Ýr Jónsdóttir, Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir, María Rós Kristjánsdóttir og Silja Rós Ragnarsdóttir.
Fatahönnuður: Rakel Blom.
17:40 – Hildur Lilliendahl ræðir um feminískan aktívisma á Íslandi
18:15 – Skáldkonur úr félaginu Meðgönguljóð flytja ljóð.
Fram koma: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, Bergþóra Einarsdóttir, og Valgerður
Þóroddsdóttir.
19:00 – Skáldkonur úr félaginu Fríyrkjan flytja ljóð.
Fram koma: Ólöf Benediktsdóttir, Megan Auður Grímsdóttir, Stefanía Dóttir Páls, Steinunn Ýr Einarsdóttir, Valdís Rán Samúelsdóttir og Vigdís Ósk Howser Harðardóttir.
20:00 – Uppistand.
Fram koma: Bylgja Babýlons, Þórdís Nadia Semichat og Snjolaug Ludviksdottir
21:00 – Tónleikar.
Fram koma: Bella Quinn, Bergljót Arnalds, Bríet Ísis Elfar, Tinna Katrín Jónsdóttir, Hljómsveitin Eva og Unnur Sara
Hlé verður gert á meðan flugeldasýning Menningarnætur fer fram.
00:15 – Kitty Von Sometime sýnir vídjóverk úr smiðju The Weird Girls Project.
1:00 – Reykjavíkurdætur
1:45 – DJ Mobus Gudrun Bernhards heldur hita í mannskapnum fram eftir nóttu.
Previous Event Next Event