-

Fufanu og Alters live

Jan 18, 2018 @ 9:30 pm  —  Jan 19, 2018 @ 1:00am

Fufanu liðar voru þokkalega uppteknir á árinu 2017. Þeir gáfu út plötuna Sports í febrúar og hafa síðan þá verið að fylgja henni eftir með tónleikum beggja vegna Atlantshafs. Fufanu hefur áunnið sér einkar gott orðspor fyrir tónleika sína og ratar oftar en ekki á lista yfir bestu tónleikaupplifun gagnrýnanda.

Undanfarið hefur hljómsveitin nýtt tíman í að taka upp og vinna í nýrri tónlist en ætla nú að hefja nýja árið með tónleikum á Bryggjunni Brugghúsi.

Með þeim í för verður pólska hljómsveitin Alters sem er mönnuð sprenglærðum hljóðfæraleikurum og pródúserum.

Alters er all þekkt í evrópsku indie senunni og hafa komið fram á sviði Pólsku óperunnar og fjölda stórra rokkfestivala í Evrópu. Hljómsveitameðlimir eru með listrænan bakgrunn sem þeir nýta til fulls við sviðsframkomu, sviðsmynd, videólist og framkomu á tónleikum sínum. Alters hafa auk þess unnið til virtra verðlauna fyrir tónlist sína og video í heimalandi sínu,

Aðgangur er ókeypis

//

The members of Fufanu managed to keep busy during the year 2017. They released the album Sports in February and have since then been touring the album, both in Europe and America. Fufanu has built up a good reputation for their concerts and most of the time they find their way to journalist’s top concert experience.

Recently the band has used their time to record and work on new music. Now they’re going to kick-start the new year with a concert at Bryggjan Burgghús.

Joining Fufanu that night will be the Polish band Alters that is made up of classically educated multi-instrumentalists and music producers.

Alters are well-known in the independent music community, performing from the stage of National Opera to the largest rock festivals. The group also includes graduates of the Warsaw Academy of Fine Arts, who combine music with audiovisual scenography, installations and video-art. Diversified multipart compositions interspersed with songs and solo etudes create concept albums, which then are realized in concerts. ALTERS won a first price in Audiowizje Festival 2014 and their music video “Dawn” has been nominated and screened on four film festivals in Denmark, Canada and Poland.

Admission is free.



Event Details