Svartholstónleikar á Húrra: Andi, dj flugvél & geimskip o.fl.
Fimmtudaginn 8. febrúar opnast SVARTHOL á tónleikastaðnum Húrra.
Þar verða haldnir óhugnanlegustu tónleikar í manna minnum.
Þessar hljómsveitir spila:
Andi
dj. flugvél og geimskip
Sveimur
Madonna + Child
Harry Knuckles
Allt eru þetta einstaklega skuggalegar rafhljómsveitir sem spila nú með það eitt að markmiði að tónleikagestir verði ekki samir eftir upplilfun kvöldsins.
Húsið opnar kl. 20.00 og dagskráin hefst stuttu eftir það.
Verðið er einstaklega notalegt; 1500 krónur.
LEYNI ATRIÐI!:
dj. flugvél og geimskip og tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon frumflytja einnig nýtt myndband leikstýrðu af Loga Hilmarssyni með einstökum tæknibrellum við glænýtt lag sem þau sömdu saman! svo MISSIÐ EKKI AF ÞESSU ÓTRÚLEGA TÆKIFÆRI!
geimferðalag! svarthol! hugarfarsbreyting til frambúðar!
Previous Event Next Event