
MEIK í Hard Rock Kjallaranum 23.feb
ALRIGHT REYKJAVÍK! YOU WANTED THE BEST AND YOU GOT THE NÆSTBEST – MEIK!
KISS heiðurshljómsveitin MEIK blæs til tónleika á Hard Rock Café Reykjavík föstudagskvöldið 23. febrúar. Á efnisskránni verða eingöngu lög KISS en allir meðlimir MEIK hafa einhvern tímann á lífsleiðinni verið forfallnir aðdáendur þessarar einstöku rokksveitar.
SÉRSTAKUR GESTUR: ARI ELDJÁRN!
Meðlimir MEIK, sem Bruce Kulick, fyrrum gítarleikari KISS, lýsti í viðtali sem “the most talented group of musicians I have ever played with”, koma úr ýmsum áttum. Þeir eru m.a. meðlimir í Sálinni hans Jóns míns, Á móti sól, Todmobile, Skálmöld og Dúndurfréttum:
Magni Ásgeirsson – söngur
Þráinn Árni Baldvinsson – gítar
Einar Þór Jóhannsson – gítar
Jón Elvar Hafsteinsson – gítar
Eiður Arnarsson – bassi
Jóhann Hjörleifsson – trommur
Verð 2500,- kr
Previous Event Next Event