-

Fullveldispönk í Hard Rock Kjallaranum

Dec 1, 2017 @ 9:00 pm  —  Dec 1, 2017 @ 11:59pm

Annað árið í röð heldur Pönksafn Íslands Fullveldispönk í Hard Rock Café. Boðið verður upp á hljómsveitir sem störfuðu á árunum 1979-1982 og koma nú saman aftur eftir langt hlé.

– Taugadeildin var ein helsta nýbylgjuhljómsveit landsins. Hún starfaði stutt en tókst að koma út einni 4-laga plötu áður en hún hætti. Þessi plata er mikill safngripur í dag og selst á háu verði.

– Snillingarnir voru eitt allra fyrsta pönkband Íslands og spilaði mikið árin 1979 og 1980. Meðal meðlima var bassaleikarnn Steinþór Stefánsson. Þegar hann gekk í Fræbbblanna var það banabiti Snillinganna.

– Handan Grafar var kaldrifjaður synta-dúett sem spilaði minimal wave með gothic áhrifum. Band á undan sinni samtíð.

– Stífgrím Kombóið var glettinn spuni tveggja félaga úr Vesturbæ Kópavogs. Bandið er alveg jafn ferskt í dag og 1980.

– Pink street boys eru fulltrúar ungu kynslóðarinnar á þessum tónleikum, besta rokkband klakans í dag og spilar hamslaust óreiðurokk. Önnur plata sveitarinnar er komin út og gefur þeirri fyrstu ekkert eftir.



Event Venue


  • Venue
    Hard Rock Cafe Reykjavik
  • About
    Hard Rock Café Reykjavik
  • Email
    info@hrcreykjavik.com
  • Follow On

Event Details