SYKUR + GDRN á Húrra
Hljómsveitin SYKUR ætlar að söðla um og slær til stórtónleika á Húrra þann 16. desember. Á nýafstaðinni Airwaves hátíð fylltist kofinn og færri komust að en vildu. Hljómsveitin hefur staðið í ströngu að undanförnu við að semja ný lög sem munu líta dagsins ljós á næstu mánuðum og verða nokkur þeirra flutt á tónleikunum. Kjörið tækifæri til að hrista af sér prófatörnina. Skiljið margföldunartöflurnar eftir heima og komið og dansið með okkur!
GDRN spilar á undan SYKUR, en hún er ung tónlistarkona sem hefur verið að gera það gott í tónlistarsenunni undanfarið. Það mætti skilgreina tónlistina hennar sem jazz-skotið hip-hop popp og ætlar GDRN að spila glænýtt efni af tilvonandi EP plötu sinni á tónleikunum. Nýjasta lagið hennar „Það sem var“ hefur vakið mikla athygli að undanförnu.
⚡️ Miðaverð 2000 krónur á tix.is (link: bit.ly/SykurHurra2017) ⚡️
Previous Event Next Event