Ylja og Elín Ey – live á Bryggjunni
Fimmtudaginn 16. nóvember klukkna 21 verður slegið upp hlýlegri tónlistarveislu hér á Bryggjunni með tónleikum tónlistarkonunnar Elín Ey og dúettinum Ylju, aðgangur er ókeypis.
Elín Ey vinnur að nýrri plötu þessa dagana þar sem hún ætlar að blanda saman folk og elektróník en eins og flestir vita þá er hún líka meðlimur í hljómsveitinni Sísí Ey. Elín Ey gaf út sína fyrstu plötu See you in Dreamland 2008 og hefur síðan flutt tónlist sína um allan heim við góðar undirtektir.
Ylja var stofnuð af þeim Gígju Skjaldardóttur og Bjartey Sveinsdóttir árið 2008 og hafa vakið verðskuldaða athygli tónlistarunnenda fyrir nýstárlega þjóðlagatónlist sína undanfarin ár. Hljómsveitin, sem fullskipuð telur fimm meðlimi, hefur verið tilnefnd til verðlauna sem bjartasta vonin og þá hafa Bjartey og Gígja báðar verið tilnefndar til verðlauna sem söngkona ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum. Tónleikar sveitarinnar þykja einstakir og því er um að gera að mæta hér á Bryggjuna til að sjá þetta frábæra band.
—
On the 16 th of November at 21 we will have a folk feast for eyes and ears when Ylja and Elín Ey play live concert here at Bryggjan Brugghús, admission is free.
Elín Ey released her first album “See you in Dreamland” in 2008. Since then Elín has played her music all around the world with various artists. Elín is now working on a new album to be released soon prepare to hear new sounds from Elín Ey here at Bryggjan Brugghús.
Gígja Skjaldardóttir and Bjartey Sveinsdóttir have been singing and playing together as Ylja since 2008 and have won heart and soul of folk music lovers in iceland with their fresh sound. The band has received nominations as newcomer of the year and singer of the year at the icelandic music awards.
Previous Event Next Event