TEQUILA STREETBALLMÓT PRIKSINS 50.000 kall í vinning.
Þá er komið að hinni árlegu Streetball keppni Priksins. Skráningin fer þannig fram að liðsstjóri sendir póst á bokanir@montana.is með nafni keppnisliðs síns, nöfn liðsmanna ásamt símanúmerinu sínu. Seinasti skráningardagur er 24. ágúst kl:17:00 (þ.e.a.s ef það er ennþá laust pláss fyrir liðið þitt). 2 saman í liði.
Keppt verður í portinu á Prikinu og fyrirkomulagið útsláttarkeppni. Lið verða dregin saman að handahófi til að keppa. Dómari verður á staðnum og ef menn brjóta á sér þá þarf að dúndra í sig skoti af Tequila. dómari getur líka skikkað menn að skjóta sig með Tequila hvenær sem er á meðan keppni stendur yfir.
Bindindismenn haldi sig heima því þetta er Tequila mót 🙂
Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Farandbikar, 50.000kr í beinhörðum peningum ásamt Tequila flösku.
ATH……….. Ef veðrið verður leiðinlegt þá mun keppnin frestast. Prikið mun þá uppfæra nýja keppnistíma hér á þessum viðburð…..
Fjör og frábær stemming með góðri tónlist í portinu á meðan leikar standa yfir.
Previous Event Next Event