Reykjavíkurdætur í Hard Rock Kjallaranum – laugardaginn 28.jan
Jan 28, 2017 @ 11:00 pm — Jan 29, 2017 @ 1:00am
REYKJAVÍKURDÆTUR ætla að rífa þakið af Hard Rock laugardaginn 28.janúar!
Hljómsveitin lét heldur betur að sér kveða á síðasta ári. Í júní gáfu þær út sína fyrstu breiðskífu RVK DTR og ferðuðust á milli stærstu tónlistarhátíða álfunnar. Meðal hátíða sem að þær komu fram á eru Roskilde Festival í Danmörku, Fiberfib á Spáni, Transmusicales í Frakklandi og á Eurosonic í Hollandi. Auk þess héldu þær tónleika í Englandi, Noregi og Belgíu. Nú eru þær byrjaðar að vinna að næstu plötu og senda frá sér fyrsti singúllinn, Kalla mig hvað?, í vikunni.
Dæturnar hafa aldrei verið þéttari og má því búast við heljarinnar tónleikum sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Limited Merch og plötusala á staðnum (CD & VÍNIL)
Látið ykkur ekki vanta!
XOXO
-RVKDTR
Previous Event Next Event