
Mugison á Hard Rock Café – 27.maí
May 27, 2017 @ 10:00 pm — May 28, 2017 @ 12:00am
Mugison á Hard Rock Café 27.maí
Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy! fyrir síðustu jól. Það var mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur, Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. þá hafa þau Tobbi og Rósa tekið uppá því að radda einsog englakór í fallegu lögunum – og Addi og Guðni halda ballestinni einsog sannir skriðdrekar. Mugison er þekktur fyrir kraftmikla og einlæga sviðsframkomu – allt lagt í sölurnar á hverjum einustu tónleikum.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að upplifa tónlist sem spannar allan tilfinningaskalann. Ekki missa af þessu!
4500 í forsölu.
Previous Event Next Event