
Úrslitaleikur í Evrópudeildinni – LIVERPOOL VS. SEVILLA
Það verða Liverpool og Sevilla sem mætast í úrslitum Evrópudeildarinnar í Basel á morgun, miðvikudag.
Á Anfield í Liverpool var Villarreal í heimsókn og höfðu Spánverjarnir eins marks forskot eftir fyrri leikinn.
Liverpool hóf leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á sjöundu mínútu þegar Bruno Soriano setti boltann í eigið net.
Daniel Sturridge sá svo um að skjóta Liverpool í úrslitaleikinn með marki á 63.mínútu og Adam Lallana gerði endanlega út um viðureignina tíu mínútum fyrir leikslok.
Á sama tíma var Shakhtar Donetsk í heimsókn hjá ríkjandi meisturum Sevilla. Kevin Gameiro kom heimamönnum í 1-0 en Króatinn Eduardo jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé.
Gameiro hóf síðari hálfleikinn á sama hátt og þann fyrri og kom Sevilla í 2-1. Brasilíski bakvörðurinn Mariano gerði svo endanlega út um einvígið eftir klukkutíma leik.
Lebowski bar mun sýna leikinn á 5 Full HD skjávörpum okkar og hefst leikurinn kl.18:30
Borðapantanir í síma 552-2300
-LEBOWSKI BAR-
Previous Event Next Event