SunnuDjass / Bryggjukvartett Ómars Guðjóns
Á SunnuDjassi Bryggjunnar Brugghús að þessu sinni leiðir Ómar Guðjónsson, gítarleikari með meiru, Bryggjukvartett sinn í gegnum efni af þremur fyrstu sólóplötum sínum, en þær bera nöfnin Varmaland, Fram af og Von í óvon. Kvartettinn fylla Andri Ólafsson bassaleikari, Kristófer Rodriguez Svönuson og Matthías Hemstock, en þeir síðarnefndu eru báðir trymblar og slagverksleikarar. Tveggja trommara bönd sjást ekki á hverjum degi, og því er þetta einstaklega skemmtilegt tækifæri til að heyra tónlist Ómars flutta af einstökum hrynþokka.
Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.
Látið ykkur ekki vanta! Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.
/
Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Guitarist Ómar Guðjónsson will perfor with Andri Ólafsson, Kristófer Rodriguez Svönuson and Matthías Hemstock.
Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event