SunnuDjass / Kvartett Ara Braga Kárasonar
ENGLISH BELOW
Á næsta SunnuDjassi Bryggjunnar Brugghús stígur á stokk kvartett trompetleikarans Ara Braga Kárasonar. Auk Ara Braga skipa kvartettinn þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Einar Scheving á trommur.
Efnisskrá kvöldsins samanstendur af sumum af þeirra uppáhalds lögum upp úr amerísku söngbókinni. Óhætt er að lofa notalegri stemmningu á Bryggjunni Brugghús næstkomandi sunnudag.
Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.
Látið ykkur ekki vanta! Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.
/
Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Performing is trumpet player Ari Bragi Kárason with Eyþór Gunnarsson on piano, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson on bass and drummer Einar Scheving.
Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event