SunnuDjass / Andrés Þór ásamt HAM tríói
ENGLISH BELOW
Næstkomandi sunnudag mun gítarleikarinn og ljúfmennið Andrés Þór Gunnlaugsson leika á Bryggjunni Brugghús efnisskrá, þar sem hryggjarstykkið eru hans eigin tónsmíðar – en hann hefur komið víða við á sínum ferli og gefið út fjöldamargar plötur. Með honum leika Hjörtur, Magnús og Andri, sem ættu að vera gestum Bryggjunnar Brugghús vel kunnir. Sem fyrr má fá ískalt Bryggjubrugg á barnum og því er þetta kjörið tækifæri til að lenda mjúklega eftir erfiða helgi.
Andrés Þór lauk burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH, bachelorsgráðu og mastersgráðu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Den Haag í Hollandi þar sem hann lærði hjá Peter Niewerf, Wim Bronnenberg, Hein van der Geyn og John Ruocco auk þess að sækja masterclassa og workshop hjá hljóðfæraleikurum eins og Avishai Cohen, Kurt Rosenwinkel, Kenny Wheeler og John Abercrombie. Andrés flutti heim frá Hollandi árið 2004 og hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi síðan og gefið út fjölda geisladiska í eigin nafni og í ýmsum samstarfsverkefnum sem hafa margir hverjir hlotið mikið lof jafnt hérlendis sem erlendis. Andrés starfar einnig sem tónlistarkennari við tónlistarskóla FÍH, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og sem stundakennari við Listaháskóla Íslands. Árið 2014 var Andrés útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar í formi tilnefninga til ýmissa verðlauna, hvatningarverðlaun og listamannalaun. Auk þess að hafa starfað með mörgum helstu tónlistarmönnum á Íslandi hefur Andrés komið fram á tónleikum með mörgum heimsþekktum jazztónlistarmönnum á borð við Michael Brecker, Ari Hoenig og Perico Sambeat. Andrés hefur komið fram víða á Íslandi og í Hollandi, Belgíu, Luxemburg, Frakklandi, Tékklandi, Slóvakíu, Noregi, Spáni, Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Á boðstólum er að vanda ljúffengur matur af barseðli auk valinkunna bjórtegunda sem bruggaðar eru á staðnum og er eldhús Bryggjunnar opið til 22.00.
Látið ykkur ekki vanta! Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir í mjúka lendingu eftir helgina.
/
Sunday night jazz at Bryggjan Brugghús next sunday. Performing is guitarist Andrés Þór Gunnlausson who will be playing some of his own material. Playing with Andrés are Hjörtur, Magnús og Andri who those that regularly visit SunnuDjazz should be well acquainted to.
Hungry concertgoers can have a taste of the delicious bar menu, as well as sampling some of the most exciting microbrews in the country. All in all, this event must count as an opportunity to sit down and enjoy some jazz after the weekend.
Kitchen open until 22.00. Looking forward to seeing you!
Entry free like usually.
Previous Event Next Event